Loading viðburðir

« Allir viðburðir

Aðalfundur MG félags Íslands

07.maí-17:00 - 20:00

MG-félag Íslands mun halda aðalfund fimmtudaginn 7. maí 2026 kl. 17:00. 

Með þessu bréfi viljum við bjóða þig velkominn á fundinn sem verður haldinn í Ólafarstofu hjá ÖBÍ í Sigtúni 42, Reykjavík.  

Meðfylgjandi er dagskrá fundarins og tillaga að breyttum lögum félagsins. Ef þú hefur athugasemd við breytingu laganna vinsamlega sendu þær upplýsingar til stjórnar félagsins, við fyrsta tækifæri. Til að hafa atkvæðisrétt þurfa félagsgjöld ársins 2026 að vera í skilum.

Aðalfundurinn er mikilvægur vettvangur fyrir okkur öll til að ræða framtíðarsýn félagsins. Við viljum hvetja þig til að mæta og láta rödd þína heyrast, því félagið byggir á samstöðu, þátttöku og samveru.  Einnig hvetjum við aðstandendur til að mæta á fundinn og kynna sér verkefni félagsins.

Við viljum endilega hvetja sem flesta til að taka þátt í starfi félagsins, bæði MG-sjúklinga og aðstandendur. Stefnt er að því að sinna betur jafningjastuðningi til viðbótar við fræðslu félagsins. Ef þú hefur áhuga á því að vera tengiliður fyrir nýgreinda eða nýja aðstandendur endilega hafið samband við [email protected] eða ræðið við okkur á fundinum.

Allir stjórnarmeðlimir bjóða sig fram til áframhaldandi setu en að sjálfsögðu hvetjum við fólk til að bjóða sig fram sé vilji sé fyrir hendi.

Stefnt er að breyttri skráningu félags, til þess þarf lagabreytingu, upplýsingar eru í fylgibréfi. 

Við vonumst til að sjá þig og aðstandendur þína á fundinum þann 7. maí n.k.

 

Reykjavík 20. apríl 2026

Með bestu kveðjum,

Stjórn MG-félags Íslands

Upplýsingar

  • Dagsetning: 07.maí
  • Tími:
    17:00 - 20:00

Venue

  • Mannréttindahúsið
  • Sigtún 42
    Reykjavík, 105 Iceland
    + Google Map

Organizer

  • MG félag Íslands