Það getur verið áskorun að ferðast með sjúkdóm eins og MG, en með smá skipulagningu og nokkur trix í huga er hægt að ferðast á öruggan hátt.
Í fyrsta lagi, skipuleggðu þig fram í tímann. Skoðaðu hvort þurfi að kaupa aukatryggingu eða hvort tryggingar sem oft fylgja ferðakaupum með kreditkorti nái yfir það svæði sem ferðast er til og undirliggjandi sjúkdóma. Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar ferðast er utan EES svæðisins. Skipuleggðu lyfin þín með það í huga að stundum frestast flug og því er mikilvægt að hafa með sér lyf fyrir nokkra auka daga. Lyf eiga heima í handfarangri svo þú lendir ekki í vandræðum ef farangur týnist.

Gerðu ráð fyrir hvíldartíma í ferðaáætluninni. Gott getur verið að taka sér dag til að hvíla sig þegar þú kemur á áfangastað og jafnvel annan dag áður ferðast er aftur heim, sérstaklega ef langt er frá dvalarstað á flugvöll.
Gerðu sveigjanlegar og endurgreiðanlegar áætlanir. Kauptu endurgreiðanlegan miða og hótelherbergi. Þú veist aldrei hvenær sjúkdómskast getur komið upp og það getur verið streituvaldandi að skipuleggja ferð. Gakktu úr skugga um að það sé auðvelt að breyta áætlunum þínum
Nýttu þær orkusparandi aðgerðir sem mögulegar eru til að minnka líkur á að MG einkennin versni um of. Sólblómabandið getur verið gagnlegt til að sýna að þú ert með ósýnilega fötlun, við vitum öll að einkenni eru mismikil og misáberandi. Sólblómabandið er afhent í afgreiðslu fyrir aðstoð á Keflavíkurflugvelli. Nánari upplýsingar hér
Kynntu þér aðstoð á flugvellinum. Það getur verið gott að bóka alltaf aðstoð svo hún sé til staðar ef versnun verður á einkennum. Þú getur beðið um hjólastólaaðstoð um allan flugvöllinn ef þörf krefur. Einnig er hægt að biðja um aðstoð í gegnum öryggisleit og síðan aftur við hlið. Þetta getur verið sérstaklega mikilvægt ef flugvél er ekki staðsett við landgang. Þá er oft betra að fá aðstoð í formi svokallaðrar „ambulift“ sem keyrir þig út að vél og lyftist upp þannig að ekki þarf að labba upp og niður stiga við flugvélina. Eins getur þessi bókun hjálpað til við að fara um borð á undan öðrum farþegum við landgang svo ekki þurfi að standa lengi í röð og bíða inni í vél eftir því að aðrir gangi frá sínum handfarangri.
Þegar slík þjónusta er bókuð er það yfirleitt gert í tengslum við flugbókun þína. Þegar búið er að bóka flug er hægt að fara inn í bókunina og bæta við ýmsum atriðum, þar á meðal aðstoð. Sem dæmi hjá Icelandair þá opnar þú bókun þína, velur „Aðstoð og aðgengi“, skrollar niður að „óska eftir hjólastólaþjónustu og velur þjónustu sem þar heitir „Hjólastóll að landgangi og aðstoð við þrep“. Fyrir aftan þann texta er skammstöfunin WCHS sem er sama skammstöfun og notuð er um allan heim þegar þessi þjónusta er bókuð. Öll sú þjónusta sem nefnd er hér að ofan fellur undir þennan lið. Að bóka þessa þjónustu tryggir einnig að þú sért sótt/ur með hjólastól að vél þegar þú kemur út, það getur verið mikilvægt fyrir fólk með MG því við vitum ekki alltaf hvernig ferðalagið fer í okkur og vitum ekki alltaf hversu langar leiðir þarf að ganga þegar komið er á flugvöll erlendis.
Veldu þér sæti við hæfi. Hugsaðu hvort þú viljir sitja við gang og geta þannig komist hraðar á klósettið, en mögulega þarf þá að standa upp oftar fyrir sætisfélaga þína. Eða sitja við glugga svo hægt sé að nýta sér að halla sér að vegg og ekki þarf að standa upp nema þegar þú þarft á að halda.
Ferðastu með hálspúða til að hafa betri stuðning á ferðalagi þínu, sérstaklega ef þú finnur fyrir einkennum á leiðinni. Einnig getur verið gott að nota heyrnatól eða eyrnatappa til að minnka hávaðaáreiti í fluginu.
Þegar út er komið er ýmsu að huga. Aðrir MG sjúklingar hafa nýtt sér gervigreindina til að skipuleggja ferðina, fá að vita hvenær er best að nýta sér almenningssamgöngur, hvenær best sé að nota leigubíla eða Uber og hvaða leiðir er hægt að labba í rólegheitum með stöðum til að stoppa og setjast niður.
Ef þú vilt heimsækja skemmtigarð skaltu hringja í þjónustuver eða skoða vefsíðu þeirra til að kynna þér þjónustu fyrir fatlaða. Sumir garðar bjóða upp á þjónustu sem gerir þér kleift að taka frá pláss í röðinni með sýndaraðferð – án þess að þurfa að standa í röðinni – ef þú ert ekki líkamlega fær um það. Flestir garðar, dýragarðar og sædýrasöfn hafa rafskutlur eða hjólastóla sem þú getur leigt. Ef þú ert í hjólastól geturðu oft fengið aðgang að tækjum og sýningum um annan inngang.
Ertu að íhuga skemmtisiglingu? Hafðu í huga að miklar vegalengdir eru oft á milli staða um borð í þeim skipum. Það getur verið gott að biðja um klefa um miðju skips. Sum skemmtiferðaskip hafa einnig rafskutlur til leigu um borð, auk aðgengilegra klefa. Og þau hafa öll skipslækna sem geta hjálpað þér ef þú þarft á því að halda, en gott getur verið að hafa upplýsingar um MG meðferðis.
Ertu að fara á heitan stað? Mundu að kæla þig niður! Hitinn getur gert MG verri. Kælivesti er lausn sem margir einstaklingar með MG nota þegar hitinn og rakinn er of mikill. Hægt er að panta slíkt vesti á netinu, oft er auðveldara að leita að þeim sem kælivestum fyrir MS því þá færðu upp fleiri valmöguleika. Hafðu auka kælipoka í kæliboxi í bílnum þínum til að skipta þeim auðveldlega út.
Ertu að hugsa um stóra ferð til útlanda? Íhugaðu ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í aðgengilegum ferðum. Þessi fyrirtæki skipuleggja ferðir fyrir fólk með hreyfihömlun eða flókin heilsuvandamál.
Skemmtu þér vel! Mundu að hvíld og slökun eru góð fyrir líkamlega og andlega heilsu þína.