Persónuverndarstefna

Tók gildi: 14. maí 2024

MG Ísland, (einnig vísað til „félagsins,“ „við“ eða „okkar“) rekur vefinn https://mgisland.is (hér eftir nefndur „Vefurinn“). Við tökum alvarlega þær skyldur sem fylgja persónuvernd og öryggi persónuupplýsinga og meðhöndlum þær upplýsingar sem koma í gegnum vefinn í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari förum við yfir hvaða upplýsingar við skráum, með hvaða hætti og í hvaða tilgangi.

Skilgreiningar

Vefurinn
Vefurinn er heimasíða félagsins á slóðinni https://mgisland.is

Persónuupplýsingar
Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, svo sem tilvísun í auðkenni eins og nafn og kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti.

Tæknilegar upplýsingar
Notkunargögn eru skráð sjálfkrafa þegar þú heimsækir vefinn okkar (t.d. IP-tala og tölfræðigögn). Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.

Ábyrgðaraðili
Einstaklingur, lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem ákveður einn eða í samvinnu við aðra tilgang og aðferðir við vinnslu persónuupplýsinga. MG Ísland, er ábyrgðaraðili fyrir þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustu félagsins.

Vinnsluaðili
Einstaklingur eða lögaðili, stjórnvald eða annar aðili sem vinnur með persónuupplýsingar á vegum ábyrgðaraðila. Við kunnum að miðla persónuupplýsingum til þriðja aðila (vinnsluaðila sem uppfyllir öll skilyrði) sé um að ræða þjónustuaðila.

Vinnsla
Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar er unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.

Skráður einstaklingur (eða „hinn skráði“)
Einstaklingur eða tengiliður lögaðila, sem á í samskiptum við okkur vegna þjónustu.


Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og í hvaða tilgangi?

Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar í mismunandi tilgangi, meðal annars til að veita umbeðna þjónustu og bæta heimasíðuna og þjónustuna.

Upplýsingar sem við söfnum

Persónu- og samskiptaupplýsingar
Þegar þú átt í samskiptum við okkur í gegnum heimasíðuna eða tölvupóst, þá skráum við persónuupplýsingar svo við getum haft samband við þig og/eða auðkennt þig („hinn skráði“) og veitt umbeðna þjónustu. Þær persónuupplýsingar geta meðal annars verið:

Persónuupplýsingum er safnað beint frá viðskiptavinum. Til dæmis þegar notendur afhenda MG Ísland upplýsingar í tengslum við veitta þjónustu og þegar notendur hafa samband við MG Ísland.

Tæknilegar upplýsingar
Þegar þú heimsækir vefinn okkar þá söfnum við gögnum sjálfkrafa sem fela í sér tæknilegar upplýsingar varðandi þann búnað sem þú tengist með og hvernig þú ferðast um vefinn. Þessi gögn geta innihaldið IP-tölu, tegund vafra, síðurnar sem þú skoðaðar, tíma og dagsetningu heimsóknar, tíma sem þú varðir á þessum síðum sem og aðrar upplýsingar. Við tengjum þessi gögn aldrei við persónuupplýsingar þínar.

Hvernig notum við persónuupplýsingar þínar?

Við notum upplýsingar þínar með ýmsum hætti meðal annars í eftirfarandi tilgangi:

Hvernig og hversu lengi geymum við persónuupplýsingar?

Við varðveitum persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Við geymum gögn eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslu eins og lýst er í þessari persónuverndarstefnu. Bókhaldsgögn í tengslum við þjónustu MG Ísland til viðskiptavina eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.

Miðlun persónuupplýsinga

Félagið kann að miðla persónuupplýsingum til eftirfarandi aðila:

Öryggi persónuupplýsinga

Við leggjum áherslu á öryggi persónuupplýsinga og notum til þess viðurkenndar aðferðir. Þrátt fyrir það er mikilvægt að vita að engin aðferð við að senda gögn um Internetið eða aðferð við rafræna geymslu er 100% örugg.

Réttindi þín varðandi persónuupplýsingar

Þú nýtur ýmiskonar réttinda samkvæmt lögum í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga, þó með nokkrum takmörkunum og undantekningum í gildandi lögum og reglum. Réttindi þín eru meðal annars eftirfarandi:

Til að fyrirbyggja að rétturinn hér að ofan verði misnotaður, áskiljum við okkur rétt til að fara fram á að þú sýnir fram á auðkenni áður en erindið er afgreitt. Ef þú vilt nýta þér ofangreindan rétt, þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á [email protected].

Vefsíður þriðju aðila

Vefurinn okkar kann að innihalda vísanir í og frá vefsíðum samstarfsaðila og annarra þriðju aðila. Vinsamlegast athugið að um þær vefsíður gilda aðrar persónuverndarreglur sem við hvorki höfum stjórn á né berum ábyrgð á. Við hvetjum þig því til að kynna þér þær reglur vandlega áður en þú sendir persónuupplýsingar í gegnum þær vefsíður.

Breytingar á persónuverndarstefnu okkar

Við áskiljum okkur rétt til þess að breyta og uppfæra persónuverndarstefnu þessa hvenær sem er. Við látum vita af slíkum breytingum á heimasíðu okkar.

Samskiptaupplýsingar

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuverndarstefnu þessa, þá vinsamlegast hafðu samband á [email protected].